Guðrún Þórðardóttir, Kvenfélagi Grímsneshrepps, var kosin formaður Kvenfélagasambands Íslands þegar 37. landsþing sambandsins fór fram á Selfossi á dögunum.
Yfirskrift þingsins var Hækkum flugið – kosningaréttur kvenna í eina öld. Gestjafi þingsins var Samband sunnlenskra kvenna en það er með 26 kvenfélög í Árnes- og Rangárvallasýslum innanborðs. 180 kvenfélagskonur af landinu öllu sóttu þingið á Selfossi.
Guðrún var áður varaforseti sambandsins en með henni í nýrri stjórn eru Vilborg Eiríksdóttir Kvenfélagi Mosfellsbæjar varaforseti, Bryndís Birgisdóttir Kvenfélaginu Ársól á Suðureyri gjaldkeri, Herborg Hjálmarsdóttir Kvenfélaginu Gefn í Garði ritari og Bergþóra Jóhannsdóttir Kvenfélaginu Hjálpinni í Eyjarfjarðarsveit meðstjórnandi. Katrín Haraldsdóttir Kvenfélaginu Einingu á Mýrum og Kristín Árnadóttir Kvenfélaginu Iðunni í Strandasýslu eru í varastjórn.
Sigurlaug Viborg fyrrverandi forseti KÍ var kjörin nýr heiðursfélagi Kvenfélagasambandsins.
Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa var hluti þingsins eftir hádegið á laugardeginum í opinni dagskrá. þangað kom fjöldi gesta og fylgdist með erindum, örfyrirlestrum og pallborðsumræðum tengdum þema þingsins Hækkum flugið.
Þingið sendi frá sér ályktanir, m.a. um átak gegn matarsóun, kennslu í kynjafræði, áherslur varðandi komu flóttafólks til landsins, geðheilbrigðismál barna og unglinga, læsi ofl.
Kvenfélagasamband Íslands var stofnað árið 1930 sem sameiningar og samstarfsvettvangur kvenfélaganna í landinu. Innan sambandsins starfa um 170 kvenfélög í sautján héraðs- og svæðasamböndum.
Á þinginu var frumflutt lagið „Sóa“ en lagið fjallar um matarsóun. Hljómsveitin AmabAdamA samdi lagið fyrir Kvenfélagasambandið og má hlusta á það í myndbandinu hér að neðan: