Á dögunum kallaði Guðni Ágústsson Sigurbjörgu Guðmundsdóttur frá Eyrarbakka á sinn fund og færði henni nýju bókina sína Guðni á ferð og flugi, að gjöf.
Gjöfin var þakklætisvottur fyrir hlý orð í garð Guðna, en þegar Sigurbjörg var Sunnlendingur vikunnar á sunnlenska.is í vor sagðist geta hugsað sér að prófa að vera Angela Markel, valdamesta kona heims í einn dag – eða Guðni Ágústsson.
Guðna þótti vænt um athyglina enda Eyrbekkingur að ætt en Ágúst faðir hans fæddist og ólst upp til tíu ára aldurs á Bakkanum. Sigurbjörgu kannast margir við úr Gettu betur en hún keppti með sigurliði Verslunarskólans síðasta vetur og var Sunnlendingur vikunnar á sunnlenska.is eftir sigurinn.
Sigurbjörg starfar nú við Grunnskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri en eftir áramót flytur hún til Frankfurt í Þýskalandi til þess að læra þýsku.
Vildi prófa að vera valdamesta kona heims – eða Guðni Ágústsson