Guðrún Hafsteinsdóttir tilkynnti á aðalfundi Sjálfstæðisfélagsins í Hveragerði í kvöld að hún myndi bjóða sig fram til forystu í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi sem fram fer þann 29. maí.
„Síðustu vikur og mánuði hef ég fengið mikla hvatningu, alls staðar að í Suðurkjördæmi, til að gefa kost á mér í prófkjöri Sjálfstæðismanna. Ég er þakklát öllum þeim sem hafa stutt mig og hvatt með ráðum og dáð og hlakka til þessa verkefnis sem framundan er,“ segir Guðrún í tilkynningu sem hún sendi frá sér eftir fundinn.
Guðrún er fædd 9. febrúar 1970 og er dóttir hjónanna Laufeyjar Valdimarsdóttur og Hafsteins Kristinssonar. Guðrún er í sambúð með Hans Kristjáni Einarssyni Hagerup, gullsmið og eiga þau samtals sex börn.
Hún er með stúdentspróf frá Fjölbrautaskóla Suðurlands, B.A gráðu í mannfræði frá HÍ 2008 og þá hefur hún lokið diplóma námi í jafnréttisfræðum einnig frá HÍ. Hún hefur starfað nær allan sinn starfsferil hjá fyrirtæki fjölskyldunnar, Kjörís ehf. í Hveragerði.
Guðrún hefur alla tíð verið virk í félagsmálum. Hún hefur setið í bæði fræðslunefnd og skipulags- og umhverfisnefnd Hveragerðisbæjar sem fulltrúi D-listans og þá á hún sæti í sóknarnefnd Hveragerðiskirkju. Árið 2004 stofnaði hún Sunddeild Íþróttafélagsins Hamars og var formaður deildarinnar til 2014.
Síðastliðinn áratug hefur Guðrún setið í stjórnum margra fyrirtækja og félaga. Hún var kjörin formaður Samtaka iðnaðarins árið 2014 og var þar formaður til 2020. Þá hefur hún einnig átt sæti í stjórn Samtaka atvinnulífsins, Háskóla Reykjavíkur, Bláa lónsins og Lífeyrissjóðs verzlunarmanna.
„Suðurkjördæmi býr yfir miklum tækifærum sem brýnt er að efla,“ segir Guðrún. „Ég er tilbúin að taka þátt í þeirri vinnu og tel að reynsla mín og þekking muni nýtast vel. Í Suðurkjördæmi er iðandi og gott mannlíf og hér höfum við allt sem þarf til að vera leiðandi á öllum sviðum atvinnlífsins. Ég trúi því að saman getum við eflt atvinnugreinar okkar og bætt lífskjör okkar sem hér búum og störfum.“