Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun sem gildir fyrir Suðurland frá kl. 13:00 – 20:00 á sunnudag.
Gert er ráð fyrir 15-23 m/sek með slyddu og síðar rigningu. Hækkandi hitastig, aukið afrennsli og vatnavextir í ám og lækjum.
Fólk er hvatt til að sýna aðgát og mikilvægt er að hreinsa frá niðurföllum til að forðast vatnstjón vegna rigningar og leysingavatns.