Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir allt landið en mikilli úrkomu og leysingum er spáð á miðvikudag og fimmtudag.
Viðvörunin er í gildi á Suðurlandi frá kl. 16 í dag, þriðjudag, til kl. 12 á hádegi á fimmtudag.
Leysingarnar munu valda vatnavöxtum í ám og lækjum á Suðurlandi. Spáð er hlýjum sunnanáttum með rigningu á Suður- og Vesturlandi og leysingum um allt land.
Reikna má með vatnavöxtum og auknum líkum á krapaflóðum. Fólk er hvatt til þess að hreinsa frá niðurföllum og fráveituskurðum.