Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir Suðurland sem gildir frá kl. 16 á sunnudag til kl. 10 á mánudagsmorgun.
Gert er ráð fyrir talsverðri eða mikilli rigningu og ört hækkandi hitastigi. Búast má við miklum leysingum, auknu afrennsli og vatnavöxtum í ám og lækjum. Mikil hálka getur myndast þar sem rignir á klakabunka eða þjappaðan snjó.
Veðurstofan bendir á mikilvægt er að hreinsa frá niðurföllum til að forðast vatnstjón vegna rigningar og leysingavatns. Fólk er hvatt til að sýna aðgát og fylgjast með veðurspám.
Á suðausturlandi er gul viðvörun í gildi í dag til klukkan 16 vegna norðvestan storms. Gula viðvörunin vegna asahlákunnar hefst þar kl. 20 á sunnudagskvöld til klukkan 14 á mánudag.