Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir Suðurland vegna leysinga sem gildir frá klukkan 22 á fimmtudagskvöld til klukkan 6 á föstudagsmorgun.
Gert er ráð fyrir talsverðri eða mikilli rigningu og ört hækkandi hitastigi. Búast má við miklum leysingum, auknu afrennsli og vatnavöxtum í ám og lækjum.
Vegfarendur, bæði gangandi og akandi, eru beðnir um að vara sig á því að mikil hálka getur myndast þar sem rignir á klakabunka eða þjappaðan snjó. Mikilvægt er að hreinsa frá niðurföllum til að forðast vatnstjón vegna rigningar og leysingavatns.
Fólk er hvatt til að sýna aðgát og fylgjast með veðurspám.