Vegagerðin gerir ekki lengur ráð fyrir því að loka þurfi Hellisheiði og Þrengslum vegna veðurs í dag. Í gærkvöldi var kynnt fyrirhuguð lokun í tæpan sólarhring.
Klukkan átta í morgun var skafrenningur á Hellisheiði og í Þrengslum og hálka eða snjóþekja víðast hvar á Suðurlandi.
Flughált er í Eldhrauni en snjóþekja og éljagangur austan til.