Seiðaræktun hefur gengið vel hjá fyrirtækinu Ísþór ehf. í Þorlákshöfn og er stefnt að því að senda seiði til áframhaldandi eldis vestur á firði nú í júní.
Sömuleiðis hafa seiði verið seld til Færeyja og er ætlunin að afhending þeirra hefjist í ágúst.
Ísþór er í eigu Fjarðalax ehf. sem er að efla verulega kvíaeldi sitt á Vestfjörðum og hefur þess vegna orðið talsverð aukning á starfsemi félagsins í Þorlákshöfn. Jafnvel meira en stefnt var að að sögn Höskuldar Steinarssonar, framkvæmdastjóra félagsins.
Hjá félaginu vinna nú 11 til 12 manns í Þorlákshöfn en voru fjórir síðasta haust. Félagið hefur ráðið tvo iðnaðarmenn til starfa vegna endurbóta á húsakosti og þá var nýlega gengið frá mönnun á næturvakt sem hafði í för með sér ráðningu á nokkrum starfsmönnum.
Félagið er með áframeldi í sjókvíum í Tálknafirði og stefnir að því að hefja sjókvíaeldi í Arnarfirði á þessu ári en félagið elur upp lax til slátrunar þar. Allt þetta mun styrka seiðaeldisstarfsemina í Þorlákshöfn en þar eru nú um þrjár milljónir seiða. Félagið hefur ekki treyst sér til að nota stærstu kvíarnar til þessa en ef fer sem horfir gæti komið til þess síðar.
Á síðasta ári nýtti Fjarðalax kauprétt sinn að fiskeldisstöð Fiskeyjar að Nesbraut 25 í Þorlákshöfn eins og heimilt var samkvæmt leigusamningi milli félaganna. Þá hófust umtalsverðar endurbætur á eldisstöðinni og hefur þeim verið haldið áfram á þessu ári.