Lögreglan á Suðurlandi hefur ekki fundið manninn sem réðst að 13 ára gömlum dreng undir Hamrinum í Hveragerði um klukkan fimm í gær og reyndi að ræna hann.
Nokkuð víðtæk leit var gerð að manninum í Hveragerði eftir að tilkynning barst um málið, en hún var án árangurs, að sögn lögreglu.
Maðurinn var með lambhúshettu á höfðinu og lögregla hefur ekki hugmynd um hver hann er, eða á hvaða aldursbili hann gæti verið.
TENGDAR FRÉTTIR:
Grímuklæddur maður réðst á 13 ára dreng