Hagstæðast er fyrir íslenska vísitölufjölskyldu sem telur foreldra og tvö börn að búa í Grímsnes- og Grafningshreppi. Viðskiptaráð hefur opnað nýjan örvef þar sem fólki gefst kostur á að bera saman kostnaðinn við að búa í ólíkum sveitarfélögum.
mbl.is greinir frá þessu.
Á vefnum má sjá yfirlit yfir skatta, gjöld og skuldir sveitarfélaganna. Einnig má bera niðurstöður saman við landsmeðaltal og stilla upp samanburði milli ákveðinna sveitarfélaga. Með opnun vefsins vill Viðskiptaráð auka gagnsæi um skattheimtu, gjöld og skuldsetningu á sveitarstjórnarstigi.
Hér má skoða vefinn nánar.