Hefðbundið skólastarf í Fjölbrautaskóla Suðurlands var brotið upp um hríð sl. þriðjudag í tilefni af 35 ára afmæli skólans.
Nemendur og starfsfólk tóku þátt í ratleik þar sem leysa átti þrautir við hina ýmsu staði þar sem kennt var á árdögum skólans. Þar er átt við hina frægu „hlaupabraut“, en fyrstu ár skólans var kennt í rýmum vítt og breytt á Selfossi áður en nýbyggingin Oddi var tekin í notkun 1987.
Að ratleik loknum var samkunda í Iðu þar sem Olga Lísa Garðarsdóttir skólameistari hélt tölu, Hannes Stefánsson, þýskukennari rifjaði upp byrjunarár FSu og Sverrir Ingibjartsson íþróttakennari og fyrrum nemandi á hlaupabrautinni sagði sögur. Svanur Ingvarsson og Þórarinn Ingólfsson reyndu á raddbönd áhorfenda og Kór FSu tók lagið.
Að dagskrá lokinni tók við pylsu- og kleinuát, en nemendur á grunndeild matvæla- og ferðagreina steiktu 1000 kleinur í tilefni dagsins. Kennsla hófst svo að nýju eftir hádegi. Núverandi og fyrrverandi starfsfólk hittist svo í lok dags í hátíðarkaffi og spjalli. Þar afhentu heldri starfsmenn sem látið hafa af störfum skólanum blómvönd og Ágústa Ragnarsdóttir, myndlistakennari, rifjaði upp ræðu sem hún flutti við vígslu Odda.