Erlendur ferðamaður handleggsbrotnaði er hann féll af vélsleða í Skálpanesi við Langjökul síðdegis á laugardag.
Maðurinn var í ferð á vegum ferðaþjónustufyrirtækis.
Með honum á sleðanum var eiginkona hans sem einnig féll af sleðanum en hún slasaðist ekki.