Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn í morgun grunaður um að hafa kveikt í íbúð á neðri hæð á Birkivöllum 15 á Selfossi snemma í morgun.
Kl. 06:14 tilkynnti íbúi á efri hæð hússins um að eldur væri logandi í íbúð á neðri hæðinni. Íbúinn hafði vaknað við sprengingu og sagði eld loga út um glugga á neðri hæðinni.
Slökkvistarf gekk vel og ekki urðu slys á mönnum en mikið tjón á neðri hæðinni og einnig fór reykur um allt húsið.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu benti fyrsta aðkoma á vettvangi til þess að um íkveikju væri að ræða og styður frumrannsókn lögreglu og tæknideildar lögreglu höfuðborgarsvæðisins þær grunsemdir.
Í þágu rannsóknar málsins var maður á þrítugsaldri handtekinn í morgun, grunaður um verknaðinn, og bíður hann þess nú að verða yfirheyrður.
Lögregla biður alla þá sem telja sig hafa orðið vara við grunsamlegar mannaferðir sem tengst gætu máli þessu að hafa samband í síma 480 1010.