Einn var fluttur á sjúkrahús eftir líkamsárás á Selfossi í nótt. Einn var handtekinn vegna árásarinnar og vistaður í fangageymslu.
Þetta staðfestir Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn á Suðurlandi í samtali við Vísi, sem fyrst greindi frá málinu.
Rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi fer með rannsókn málsins og var vettvangurinn meðal annars skoðaður í dag. Ekki fengust upplýsingar um líðan þess sem varð fyrir árásinni eða hvort hvort krafist verði gæsluvarðhalds yfir þeim sem var handtekinn.