Harma vanefndir ríkisstjórnarinnar

Sameiginlegur fundur samninganefndar Bárunnar, stéttarfélags og Verslunarmannafélags Suðurlands harmar vanefndir ríksstjórnarinnar í tengslum við kjarasamningana sem undirritaðir voru í maí í fyrra.

Á fundinum, sem fram fór í kvöld var samþykkt ályktun þessa efnis en þar segir að á sama tíma og aðilar vinnumarkaðarins hafa lagt á sig mikið erfiði og fórnir til að ná markmiðum samningsins þá hefur ríkisstjórn velferðar, jöfnuðar og lýðræðis svikið mikilvæg loforð í þríhliða samkomulagi milli aðila

„Flest loforð um bætt kjör til handa þeim sem minnst bera úr býtum hafa verið svikin og ekkert bólar á fjárfestingum eða aðgerðum sem væntingar voru uppi um við undirskrift samningsins. Atvinnuleysi er viðvarandi og álögur á almenning aukast jafnt og þétt. Ekkert bólar á marglofuðum störfum og ekki er enn farið að vinna að jöfnuði lífeyrisréttinda heldur þvert á móti er hert á snörunni um háls almennu lífeyrissjóðanna,“ segir meðal annars í ályktuninni.

Fundurinn minnir á að aftur og aftur hefur ríkisstjórnin, sem sótti umboð sitt til almennings, svikið loforð sín. Fundarmenn spyrja því hvort ríkisstjórnin telji sig geta notið trausts í því ljósi og krefst þess að nú þegar verði farið í þær atvinnuskapandi aðgerðir sem lofað var, svo koma megi atvinnulífinu af stað þannig hér fari að skapast hagvöxtur sem byggir á öðru en að sækja pening í vasa launafólks.

Fyrri greinML áfram í Gettu betur
Næsta greinSeiglusigur hjá FSu