Að morgni síðastliðins miðvikudags tóku starfsmenn Samkaupa við Tryggvagötu á Selfossi eftir því að tveir bekkir sem höfðu verið framan við verslunina voru horfnir.
Annar bekkurinn fannst mölbrotinn í ruslagámi en hinn er ófundinn. Þessu til viðbótar hafði egg verið brotið á afturrúðu bifreiðar eins starfsmanns verslunarinnar.
Ekki er vitað hverjir voru þarna að verki en lögreglan á Selfossi biður alla sem veitt geta upplýsingar um málið að hafa samband í síma 480 1010.
Í versluninni hefur borið á hnupli undanfarið og starfsfólk hefur gert ráðstafanir til að hamla því. Getgátur eru um að gjörningarnir séu sprottnir af hefnd skemmdarvarganna í garð verslunarinnar fyrir að bregðast við búðahnuplinu.