Björgunarsveitarmenn frá Hveragerði eru nú á leiðinni að aðstoða fjölda bíla sem eru í vandræðum allt frá Hellisheiði að Sandskeiði. Búið er að loka fyrir umferð um veginn vegna veðurs og ófærðar.
Samkvæmt upplýsingum frá björgunarsveitinni eru að minnsta kosti tíu til fimmtán bílar í vandræðum á svæðinu og alls ekkert ferðaveður sé þar núna.
Að sögn Vegagerðarinnar er mikill skafrenningur og óveður á svæðinu og spáð sé versnandi veðri með kvöldinu.