Heilsugæslan og sjúkraflutningar á Höfn færist yfir til HSU

Heilsugæslustöðin á Höfn. Ljósmynd/HSU

Heilbrigðisráðherra hefur falið Heilbrigðisstofnun Suðurlands að taka við ábyrgð og rekstri heilbrigðisþjónustu á Höfn í Hornafirði.

Yfirfærsla á rekstri heilsugæslunnar og sjúkraflutninga mun taka gildi frá og með 1. apríl næstkomandi.

Íbúar á svæðinu munu ekki finna fyrir þessum breytingum þar sem þjónustan verður óbreytt en vakin er athygli á að símanúmer breytast.  Nýtt aðalnúmer heilsugæslu HSU á Höfn verður 432-2900.  

„Framkvæmdastjórn HSU fagnar því að nú er heilsugæslan og sjúkraflutningar á Höfn formlega orðin hluti af Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Við hlökkum til samstarfsins og erum bjartsýn á að þessar breytingar muni verða  til góða bæði fyrir starfsmenn og íbúa á Höfn í Hornafirði,“ segir Díana Óskarsdóttir, forstjóri HSU.

Fyrri greinTveir teknir fyrir fíkniefnaakstur
Næsta greinHeiða Ösp ráðin deildarstjóri félagsþjónustu