Vegna viðgerðar á stofnæð verður heitavatnslaust í Þorlákshöfn og dreifbýli Ölfusi og Þorlákshöfn frá klukkan 13:00-18:00 þriðjudaginn 17. mars.
Fólki er bent á að hafa skrúfað fyrir alla heitavatnskrana til að draga úr hættu á slysi eða tjóni þegar vatnið kemst á að nýju.
Í kuldatíð er ráðlegt að hafa glugga lokaða og útidyr ekki opnar lengur en þörf krefur til að koma í veg fyrir að það kólni.
Í tilkynningu frá OR biðst starfsfólk Orkuveitunnar velvirðingar á óþægindum vegna þessa.