Heitavatnsskortur vegna bilaðrar borholudælu

sunnlenska.is/Guðmundur Karl

Vegna bilaðrar borholudælu í Kaldárholti er framleiðslugeta Rangárveitna á heitu vatni skert með þeim afleiðingum að þrýstingur á heita vatninu verður lágur hjá öllum viðskiptavinum og á einhverjum stöðum gæti orðið heitavatnslaust.

Verið er að undirbúa viðgerð sem áætlað er að taki tvo daga. Rætt hefur verið við stórnotendur og þeir beðnir um að minnka notkun sem kostur er svo meira heitt vatn sé til taks fyrir húshitun á veitusvæðinu.

Veitur biðja notendur Rangárveitu að loka öllum gluggum og hafa útidyr ekki opnar lengur en nauðsynlegt er til að halda hita í húsum.

Vegna skorts á heitu vatni er sundlaugin á Hvolvelli lokuð í dag en opið er í líkamsrækt til klukkan 15.

Fyrri greinHin myllan í Þykkvabænum einnig brunnin
Næsta greinH-listinn býður ekki fram í Hrunamannahreppi