Fyrirhugað er að manna lokunarpósta beggja megin við Hellisheiði um klukkan 11. Gera má ráð fyrir að veginum verði lokað skömmu síðar, en það veltur á veðri og færð.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi.
Óvíst er hversu lengi sú lokun muni standa yfir. Vegagerðin ætlar að reyna eftir fremsta megni að halda Þrengslavegi opnum en það veltur á veðrinu hvernig það muni ganga.