Stóri vinningsmiðinn í Lottóinu sem seldur var í Krambúðinni á Selfossi er kominn í leitirnar. Það voru hjón á Selfossi sem áttu miðann og færði hann þeim rúmar 104 milljónir króna.
Maðurinn hafði séð í fjölmiðlum að vinningshafinn frá öðrum degi jóla væri enn ekki búinn að gefa sig fram og hafði hann orð á því við konu sína að það væri nú óskandi að þessi stóri vinningur færi á góðan stað. Aldrei grunaði hann að konan sín lumaði á miðanum góða í veskinu sínu.
Hjónin voru ekki almennilega búin að ná áttum með þessar gleðifréttir og má segja að þau hafi enn verið hálf skjálfandi þegar þau komu með vinningsmiðann á skrifstofu Íslenskrar getspár. Með í för var barnabarn þeirra hjóna og sögðu þau að það fyrsta sem þau ætluðu að gera væri að fara með snáðann í búð þar sem hann mætti velja sér eitthvað fallegt, ekki stóð á svarinu hjá snáðanum; „eitthvað Liverpool tengt,” sagði hann alsæll. Annarri ráðstöfun á vinningnum voru þau ekki enn farin að huga að.
„Það geta greinilega allir dottið í lukkupottinn,” sagði vinningshafinn að lokum er þau kvöddu höfuðstöðvar Íslenskrar getspár í Laugardalnum, brosandi út að eyrum, enda allt í einu rúmum 104 milljón krónum ríkari.
Í tilkynningu frá Getspá/Getraunum óskar starfsfólk þar vinningshafanum innilega til hamingju og þakkar um leið veittan stuðning sem skiptir gríðarlega miklu máli fyrir íþrótta- og ungmennafélögin í landinu sem og öryrkja sem njóta góðs af sölu Lottós. Lottópotturinn sem hjónin á Selfossi unnu er hæsti sexfaldi vinningurinn í Lottóinu hingað til og fór hann óskiptur á einn miða.