Hjúkrunar- og ljósmæðraráð Heilbrigðisstofnunar Suðurlands lýsir yfir stuðningi við kjarabaráttu hjúkrunarfræðinga á Landspítalanum en hjúkrunarfræðingar og ljósmæður á landsbyggðinni fylgjast náið með stöðunni þar.
Þetta kemur fram í tilkynningu sem Fjóla Ingimundardóttir, formaður Hjúkrunarráðs HSu, sendi fjölmiðlum í dag.
„Nú er ljóst er að sú barátta sem hjúkrunarfræðingar Landspítalans eiga í þessa stundina mun hafa áhrif á alla starfandi hjúkrunarfræðinga landsins. Samstaða er nauðsynleg og greinilegt að hún hefur náðst meðal þeirra sem starfa á Landspítalanum. Jafna þarf launamun kynjanna og mikilvægt er að hjúkrunarfræðingum séu greidd laun miðað við þá menntun og ábyrgð sem þeir bera,“ segir í tilkynningunni.
„Hjúkrunar- og ljósmæðraráð HSu skorar á stjórnvöld og stjórnendur heilbrigðisstofnana að rétta hlut hjúkrunarfræðinga sem allra fyrst svo hægt sé að halda uppi þeirri góðu heilbrigðisþjónustu sem við viljum vera þekkt fyrir að veita.“