Samkvæmt upplýsingum frá vatnamælingamönnum Veðurstofu Íslands er hlaup að hefjast í Skaftá. Skaftá hljóp einnig síðasta sumar.
Í Skaftárhlaupum getur vatn farið yfir Skaftártunguveg við Hvamm og vegurinn í Skaftárdal lokast, fyrir kemur að vatn fari yfir veginn við Hólaskjól á Fjallabaksleið nyrðri.
Upptök Skaftár eru í Skaftárjökli í Vatnajökli austan við Langasjó. Fólki er ráðlagt að vera ekki nálægt upptökum Skaftár eða í lægðum meðfram henni vegna mengunar af völdum brennisteinsvetnis, en brennisteinsvetni getur skaðað slímhúðir í augum og öndunarvegi.
Náið er fylgst með framvindu hlaupsins.