Hlé gert á leitaraðgerðum á Þingvallavatni

Mynd úr safni. Ljósmynd/Landsbjörg
Í dag hefur verið leitað í Þingvallavatni með kafbáti sem búinn er sónarbúnaði og myndavél að líki manns sem talinn er hafa fallið úr uppblásnum kayak sínum þar þann 10. ágúst síðastliðinn.
Leit kafbátsins er stefnt á tvö fyrirfram skilgreind svæði út frá því hvað skipuleggjendur leitar telja líklegast til árangurs. Samanlagt nær þetta svæði yfir 1 ferkílómetra og dýpi á því er talið allt að 80 metrar. Báturinn siglir eftir fyrirfram gefnu mynstri og tekur hvor reitur 5 klukkustundir í skönnun. Úrvinnsla gagnanna er þá eftir og ljóst að hún mun taka einhverja daga. Því er ekki að vænta frekari frétta af leitaraðgerðunum að sinni.
Lögreglan hefur ákveðið að gera hlé á formlegri leit en til skoðunar er hvort nota megi annarsskonar sónarbúnað við leitina. Lögreglan segir ekki tímabært að ræða tímasetningu og umfang slíkra aðgerða að sinni.
 
Fylgst verður sérstaklega með vatninu en komi ekkert nýtt upp munu bakkar þess verða gengnir að 3 til 4  vikum liðnum til að kanna hvort eitthvað henni tengt hafi rekið að landi.
Fyrri greinSkráningu í KIA Gullhringinn að ljúka
Næsta greinTvö HSK met í Brúarhlaupinu