Framkvæmdir við hleðslugarð GTS ehf við Fossnes 7 á Selfossi eru í fullum gangi og áætlað er að opna svæðið þann 13. september næstkomandi.
Í hleðslugarðinum verða fimmtán hleðslustöðvar með 26 tenglum i fyrsta áfanga og eru stöðvarnar fyrir allar stærðir af bílum. Hleðslugeta stöðvanna verður frá 90kw allt upp í 600kw. Þetta verður öflugasta hleðslustöð landsins með heildar hleðslugetu upp á 1.440 kw.
Markmið GTS er að sýna fram á að rafvæðing sé raunhæfur kostur fyrir hóperðafyrirtæki á Íslandi. Fyrirtækið stefnir að því að vera leiðandi í orkuskiptum í hópferðastarfsemi á Íslandi. GTS leggur áherslu á græna orku, að draga úr mengun og vistvænan rekstur.
GTS er nú með þrjá rafknúna bíla í flota sínum, meðal annars 49 farþega lúxus rafmagnsrútu með 422 kW rafhlöðu. Drægni hennar er 350-400 km á hleðslunni. Einnig á GTS fyrsta rafmagnsstrætisvagn landsins sem er í fastri útleigu allt árið og nýlega bættist svo rafmagnsstrætó í flotann. Sá vagn tekur 37 farþega og er með þriggja punkta öryggisbelti í öllum sætum. Drægni vagnsins dugar til að keyra allar ferðir dagsins, með smá hleðslustoppi inn á milli ferða á veturna.