Síðdegis í dag verður umferð hleypt á nýja akbraut Suðurlandsvegar við Litlu kaffistofuna.
Vegagerðin biður ökumenn um að aka gætilega meðan þeir kynnast aðstæðum.
Einnig bendir Vegagerðin á að enn er unnið að ýmsum frágangi við Suðurlandsveg og svæðið er ennþá vinnusvæði.