Grunnskólinn í Hveragerði hefur fengið afhenta höfðinglega gjöf frá Minningarsjóði Mikaels Rúnars. Um er að ræða nýtt og glæsilegt fjölnota leiktæki með rennibraut á skólalóð.
Í tilkynningu frá grunnskólanum segir að gjöfin komi sér afar vel, þar sem fram kom á nemendaþingi síðasta skólaárs að sárlega vantaði rennibraut á skólalóðina.
Minningarsjóðurinn var stofnaður til að heiðra minningu Mikaels Rúnars Jónssonar sem lést af slysförum þann 1. apríl 2017 aðeins 11 ára gamall. Tilgangur sjóðsins er að styrkja einstaklinga sem misst hafa ástvin á barnsaldri, styrkja skóla og íþróttastarf barna auk annarra góðra verka.