Hólmfríður Árnadóttir, menntunarfræðingur og skólastjóri í Sandgerði, sigraði í forvali Vinstri grænna í Suðurkjördæmi sem lauk í dag.
Valið var í efstu fimm sætin á framboðslista hreyfingarinnar fyrir Alþingiskosningarnar sem fram fara í haust.
Heiða Guðný Ásgeirsdóttir, varaþingmaður, bóndi og sveitarstjórnarmaður í Skaftárhreppi varð í 2. sæti og Sigrún Birna Steinarsdóttir, háskólanemi á Höfn í Hornafirði, í 3. sæti.
Niðurstaða forvalsins er eftirfarandi:
- sæti Hólmfríður Árnadóttir með 165 atkvæði
- sæti Heiða Guðný Ásgeirsdóttir með 188 atkvæði í 1.- 2. sæti
- sæti Sigrún Birna Steinarsdóttir með 210 atkvæði í 1.- 3. sæti
- sæti Kolbeinn Óttarsson Proppé með 176 atkvæði 1.- 4. sæti
- sæti Helga Tryggvadóttir með 264 atkvæði 1. – 5. sæti
Átta frambjóðendur voru í framboði og á kjörskrá voru 671. Atkvæði greiddu 456 en kosningaþátttaka var 68%. Auðir seðlar voru 6 og enginn var ógildur.
Kjörstjórn VG mun leggja fram lista með 20 frambjóðendum fyrir kjördæmisþing til samþykktar í samræmi við lög og stefnu hreyfingarinnar.