Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun, að tillögu forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og dómsmálaráðherra, að veita sveitarfélaginu Hornafirði fjárstyrk til að takast á við óvænt útgjöld og brýn verkefni við endurreisn í kjölfar úrkomuveðurs, vatnavaxta og flóða sem urðu á Suðaustur- og Austurlandi í lok september og byrjun október 2017.
Styrkurinn nemur alls 33,2 milljónum króna og er meðal annars veittur vegna tjóns sem varð á göngubrú yfir Hólmsá við Fláajökul, sem hrundi í flóðunum og skemmdum sem urðu á leiðum að Miðfelli, Jökulfelli, Haukafelli, Hoffelsjökli, Heinabergi og Fláajökli, yfir Kolgrímu og út í Skógey.
Með þeirri styrkveitingu sem ríkisstjórnin samþykkti í morgun hefur samtals verið veitt rúmlega 350 milljónum króna úr ríkissjóði vegna úrkomuveðurs og flóða sem urðu á Suðaustur- og Austurlandi haustið 2017.