Hrönn Guðmundsdóttir á Læk í Ölfusi tekur við starfi framkvæmdastjóra Hekluskóga af Hreini Óskarssyni. Þetta kom fram á fundi framkvæmdaráðs Skógræktarinnar síðastliðinn föstudag.
Hreinn gegnir nú starfi sviðstjóra samhæfingarsviðs Skógræktarinnar
Starfshlutfall Hrannar hjá Hekluskógum verður 30% en hún starfar áfram sem framkvæmdastjóri Landssamtaka skógareigenda í 70% stöðu.