Stýrihópur vinnur nú að endurskoðun skólastefnu Sveitarfélagsins Árborgar og hluti af þeirri vinnu er að fá hugmyndir frá sem flestum úr skólasamfélaginu.
Nú þegar hefur læsisstefna verið gefin út sem er mikilvægur hluti skólastefnunnar, hugarflugsfundur var haldinn með nemendum síðastliðið vor og ábendingavefur hefur verið opnaður á heimasíðu Árborgar.
Næsti hugarflugsfundur verður haldinn í Sunnulækjarskóla miðvikudaginn 22. nóvember kl. 17:30-19:30. Þangað eru allir velkomnir og súpuhressing verður í boði fræðslusviðs Árborgar.
Á fundinum verður unnið með þjóðfundarformi og eru allir áhugasamir hvattir til að mæta.