Eftir nokkurt hlé var ákveðið að bjóða aftur upp á mömmumorgna á bókasafninu í Þorlákshöfn.
Allir sem eru með ungviði eru velkomnir að mæta á mánudagsmorgnum á bókasafnið kl. 10-12 og stundum verður boðið upp á fræðslu eða erindi.
Á fyrsta mömmumorgninum eftir hlé mætti Sólrún Auðbertsdóttir og hélt erindi um ungbarnanudd.