Sveitarfélagið Ölfus hefur tekið ákvörðun um að ráðast eftir helgi í urðun hvalsins sem rak að í fjörunni í Skötubót.
Er það gert til að gefa áhugasömum færi á að skoða dýrið í blíðunni um helgina. Veðurspá er með besta móti og vill Sveitarfélagið Ölfus hvetja íbúa á höfuðborgarsvæðinu og nágrannabyggðum til að gera sér dagamun með því að skoða hvalinn í þessu stórkostlega umhverfi sem svo heppilega vill til að er afar aðgengilegt, segir í tilkynningu frá sveitarfélaginu. Þá er ekki úr vegi að renna við í sundlauginni eftir góðan göngutúr í fjörunni.
Áhugasömum er bent á bílastæði við golfvöllinn en þaðan er örstuttur gangur að hvalnum.