Til Getspár hafa komið þrír af fjórum vinningshöfum sem unnu rúmlega 20 milljónir hver í Lottóútdrættinum þann 19. ágúst síðastliðinn.
Enn hefur hins vegar ekkert heyrt frá miðaeigandanum sem keypti sinn miða í Hveragerði. Miðinn var keyptur hjá Skeljungi þriðjudaginn 15. ágúst og er 10 raða seðill án Jókers.
Tölurnar voru 5 – 15 – 28 – 37 – 39 og bónustalan var 1. Gefi miðaeigandinn sig fram mun hann fá greiddar 20.343.480 krónur frá Getspá.