Til stendur að setja á stofn hverfaráð eða hverfanefndir íbúa í sveitarfélaginu Árborg.
Málið verður að líkindum tekið fyrir í bæjarstjórn á næstu vikum. Verið er að áætla fjölda hólfa og hversu margir ráðsmenn yrðu í hverju þeirra.
Að sögn Eyþórs Arnalds, formanns bæjarráðs Árborgar, er tilgangur með stofnun hverfaráðanna sá að fá fram betri tengingu íbúa við bæjaryfirvöld og aukinni virkni.