Bæjarráð Hveragerðisbæjar hefur samþykkt að innleiða verkefnið Brúkum bekki í Hveragerði en tillaga að verkefninu var lögð fram og samþykkt af bæjarráði í síðustu viku.
Verkefnið er í upphafi samstarfsverkefni félags sjúkraþjálfara og eldri borgara en tilgangur þess er að kortleggja 1 km gönguleiðir, sem henta eldri borgurum og öðrum sem lakir eru til gangs. Tryggt verði að ekki verði meira en 250 m á milli bekkja við gönguleiðirnar, sem er forsenda þess að fjölmargir treysti sér til að ganga utandyra.
Á fundi sínum lýsti bæjarráð yfir ánægju með hugmyndina en þar eru lagðar fram fjórar tillögur að gönguleiðum í Hveragerði og jafnframt settar fram tillögur að staðsetningu bekkja með 250 m millibili við gönguleiðirnar.
Samkvæmt tillögunum vantar núna fimm bekki til að markmiðið um fjarlægðir milli bekkja náist. Í bókun hvatti bæjarráð bæði fyrirtæki og einstaklinga sem mögulega myndu vilja minnast vina og ættingja með kaupum á bekk sem gæti verið sérmerktur og leggja þannig lóð sitt á vogarskálar heilsueflandi samfélags.