Aðalfundur Verslunarmannafélags Suðurlands skorar á verslunarmenn á svæðinu að hafa verslanir lokaðar þann 1. maí. Neytendur eru hvattir til að sniðganga þær verslanir sem opnar verða.
Þetta segir í ályktun sem samþykkt var á aðalfundi Verslunarmannafélags Suðurlands, fyrr í kvöld.
„Dagurinn er frídagur alls launafólks á Íslandi og því á verslunarfólk að fá skilyrðislaust frí þennan dag eins og annað launafólk,“ segir m.a. í ályktuninni sem samþykkt var í kvöld.