Lögregla og svæðisstjórn björgunarsveitanna í Árnessýslu hyggjast gera tilraun til fjölgeislamælinga á dýpt og lögun gjárinnar neðan við Ölfusárbrú með það í huga að staðsetja ökutækið sem fór í ánna á mánudagskvöld í gjánni.
Lögregla og svæðisstjórn fundaði í gær með fulltrúum straumvatnsbjörgunarhóps Björgunarfélags Árborgar, kafara Sérsveitar ríkislögreglustjóra, kafara Landhelgisgæslu, fulltrúum Brunavarna Árnessýslu og fulltrúum Kranaþjónustu JÁVERK sem á Selfossi.
Á fundinum var ákveðið að gera þessa tilraun en þessi aðferð hefur ekki verið reynd áður í gjánni. Til er nokkuð gott yfirlit yfir dýpt hennar, sem gerð var með punktmælingum.
Heimila ekki köfun í gjánni
Aðgerðin þarfnast nokkurs undirbúnings og þarf að fara saman að veðurfarslegar aðstæður séu góðar og hæfilegt rennsli í ánni. Við fyrstu skoðun sýnist mönnum að mögulegt verði að gera þetta um miðja næstu viku gangi veðurspá eftir hvað varðar hitastig og úrkomu.
Framhald aðgerða neðan við brúna byggir á því hvaða árangur næst með þessum mælingum en fyrir liggur að lögregla mun ekki heimila köfun í gjánni vegna þeirrar áhættu sem í henni fælist.
Í dag verður leitað á bátum á ánni en áformað er að fínkemba svæðið með stórum hóp leitarmanna um helgina. Þá munu Landhelgisgæslumenn fljúga þyrlu yfir leitarsvæðið á eftirlitsferðum sínum óháð öðrum leitaraðgerðum.
Töluvert hefur lækkað í ánni síðan á miðvikudag þegar vatnshæðin jókst um 80 cm á einum sólarhring.