Björgunarsveitir á Suðurlandi voru boðaðar út rétt fyrir hádegi vegna illa búins göngumanns í sjálfheldu á Fimmvörðuhálsi.
UPPFÆRT KL. 15:38: Um hálf þrjú fundu björgunarsveitarmenn manninn, kaldan og blautan eftir dvölina á hálsinum um nóttina. Svo virðist sem hann hafi villst af leið en hann var staddur rúman kílómetra frá stikuðu gönguleiðinni í bröttu gili.
Hann er nú komin upp úr gilinu og fylgja björgunarsveitarmenn honum til byggða.
Maðurinn hafði lagt af stað gangandi frá Þórsmörk í gærkvöldi og gisti á Fimmvörðuhálsi í nótt. Hann náði náði sjálfur sambandi við Neyðarlínuna í morgun og óskaði eftir aðstoð, orðinn kaldur og í áttavilltur.
Björgunarsveitarmenn áætluðu staðsetningu mannsins með því að miða út farsíma hans.