Karlmaður var handtekinn um helgina í Grímsnesi þar sem hann ók bifreið grunaður um að vera undir áhrifum fíkniefna.
Hann var auk þess réttindalaus þar sem hann hafði áður verið sviptur ökuréttindum.
Í bifreiðinni var kona ásamt tveimur börnum sínum.