Almannavarnir Árnessýslu standa fyrir íbúafundi í Árnesi í kvöld, mánudaginn 29. september kl. 20:00 um möguleg áhrif yfirvofandi loftmengunar og flóðahættu vegna gossins í Holuhrauni.
Framsögumenn verða Oddur Árnason yfirlögregluþjónn í Árnessýslu og Kristján Einarsson Framkvæmdastjóri Almannavarna Árnessýslu og slökkviliðsstjóri Brunavarna Árnessýslu.