Að sögn Elfu Daggar Þórðardóttur, formanns veitustjórnar Árborgar, kemur vel til greina að efna til íbúakosninga um nýja virkjun í Ölfusá.
Elfa Dögg bendir á að hafa yrði hugfast að málið væri enn á undirbúningsstigi. Þannig væri ekki ákveðið ennþá hvort ráðist verður í umhverfismat né hvert framhald málsins yrði.
Sjá nánar í Sunnlenska fréttablaðinu PANTA ÁSKRIFT