Íbúar vilja öflugt skólastarf í báðum þorpunum

Barnaskólinn á Eyrarbakka. sunnlenska.is/Guðmundur Karl

Íbúar á Eyrarbakka og Stokkseyri skora á bæjarstjórn Sveitarfélagsins Árborgar að ganga í það strax að byggja upp bráðabirgðakennsluhúsnæði á Eyrarbakka með þeim hætti að skólastarf geti hafist með eðlilegum hætti næsta haust.

Þetta kemur fram í annarri af tveimur ályktunum sem samþykktar voru á almennum borgarafundi á Stað á Eyrarbakka í gær. Fundurinn var vel sóttur en um fimmtungur íbúanna við ströndina mættu þar.

Hvað varðar bráðabirgðalausn á húsnæðisvanda Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri vill fundurinn að skólastarf verði áfram tryggt í báðum þorpunum.

„Skólastarf er hjarta hvers bæjarfélags og fjarlægð frá skólum oft stór þáttur í búsetuvali barnafólks. Verði skólahald á Eyrarbakka lagt niður mun lítil þjónusta verða eftir í þorpinu sem myndi leiða til lítillar nýliðunar barnafólks. Jafnvel gæti farið svo, að á Eyrarbakka verði aðeins eldri borgarar búsettir og húseignir seljist á lágu verði til frístundabúsetu,“ segir í ályktun fundarins.

Varðandi framtíðarlausn á húsnæðisvanda BES skorar fundurinn á bæjarstjórn Árborgar að byggja upp framtíðarskólahúsnæði á Eyrarbakka, ásamt aðstöðu til verkgreinakennslu, íþróttaiðkunar og sunds. Jafnframt að skólahúsnæði á Stokkseyri verði fullbúið, sem og viðunandi íþróttaaðstaða.

„Með því verði þorpunum Eyrarbakka og Stokkeyri sýndur sá sómi sem þeim ber og hampað því starfi og hlutverki sem elsti starfandi barnaskóla landsins, sem nú heldur upp á 170 ára starfsafmæli sitt, sinnir,“ segir ennfremur í ályktuninni.

Boðað var til fundarins að frumkvæði fulltrúa í hverfisráði Eyrarbakka, þeirra Drífu Pálín Geirs, Estherar Helgu Guðmundsdóttur og Vigdísar Sigurðardóttur.

BES á Stokkseyri. sunnlenska.is/Guðmundur Karl
Fyrri greinStigasöfnun Selfoss heldur áfram
Næsta greinSunnlensku liðin lágu öll