Illa slasaður eftir drekabit

Tæplega 120 bangsar komu á Bangsaspítala HSu á Selfossi sl. laugardag en Lýðheilsufélag læknanema stóð fyrir spítalanum.

Margir bangsar reyndust vera stórslasaðir og veikir. Þó nokkuð margir höfðu slasast við það að detta og ótrúlega margir úr rúmunum sínum. Einn var þó verst útleikinn en hann hafði verið bitinn illa af appelsínugulum dreka.

En allir fóru bangsarnir glaðir heim, flestir með plástra eða enn stærri umbúðir og einhverjir höfðu þurft sprautu en öllum var batnað. Börnin fengu verðlaun að heimsókn lokinni.

Aðsókn fór fram úr öllum væntingum og var nóg að gera hjá læknanemunum sem tóku á móti börnunum með bangsana eða dúkkurnar sínar.

bangsaspitali2_051111gk_669997890.jpg
Arnar Freyr Óskarsson tekur röntgenmynd af mús sem klemmdist illa á hendi.

bangsaspitali051111gk_462302875.jpg
Læknanemarnir sem stóðu vaktina á bangsaspítalanum. sunnlenska.is/Guðmundur Karl

Fyrri greinFræðslunámskeið fyrir íþróttaakademíur FSu
Næsta greinSkólabjöllunni hringt gegn einelti