Ingibjörg hlaut Menningarverðlaun Suðurlands

Ingibjörg Erlingsdóttir, tók við verðlaununum á ársþingi SASS í síðustu viku. Ljósmynd/Aðsend

Ingibjörg Erlingsdóttir, tónlistarkona á Hvolsvelli, hlýtur Menningarverðlaun Suðurlands 2024 en viðurkenningin var veitt á ársþingi Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga í Hveragerði í síðustu viku. Verðlaunin eru samfélags- og hvatningarverðlaun SASS á sviði menningar á Suðurlandi.

Í rökstuðningi dómnefndar segir að Ingibjörg hafi unnið glæsilegt starf í þágu tónlistar, tónlistarkennslu og kórstjórnun á Suðurlandi. Í starfi sínu leggur Ingibjörg mikla áherslu á að hvetja unga sem aldna til söng- og hljóðfæraiðkunar. Ingibjörg stofnaði Tónsmiðju Suðurlands árið 2007 ásamt Stefáni Þorleifssyni, skólinn, sem staðsettur er á Selfossi, er rekinn af mikilli hugsjón og hugmyndafræði skólans er að sækja í sjóð nemenda og sinna þeirri tónlistarþrá sem býr í þeim.

Ingibjörg hefur stýrt barnakór Hvolsskóla á Hvolsvelli með farsælum hætti í hartnær 30 ár og er ásókn nemenda í kórinn mikil en á síðasta starfsári voru 70 nemendur í kórnum frá 5.-10. bekk en í skólanum voru 225 nemendur. Ingibjörg sýnir mikinn metnað í lagavali, útsetur lögin sjálf og hefur samið lög fyrir kórinn. Hvetur Ingibjörg nemendur til að koma út úr skelinni og syngja einsöng sem setur skemmtilegan brag á tónleika barnakórsins. Þá hefur Ingibjörg einnig stýrt kvennakórnum Ljósbrá síðastliðinn fimm ár, af miklum metnaði og elju.

Ingibjörg hefur leikið og sungið með ýmsum hljómsveitum, tónlistarhópum og kórum í gegnum tíðina, einnig hefur hún tekið að sér útsetningar og tónlistarstjórn fyrir ýmsa aðila.

Alls bárust ellefu tilnefningar til menningarverðlaunanna, um tíu verkefni af öllu Suðurlandi. Mikil breidd var í tilnefningum og gæðum þeirra og eru þær aðeins toppurinn af ísjakanum í því mikla menningarstarfi sem á sér stað í fjórðungnum, að því er fram kemur í tilkynningu frá SASS.

Fyrri greinErill hjá lögreglu: Þrír gistu fangageymslur
Næsta greinNafn mannsins sem lést