„Ég á von á að samningar verði undirritaðir í næstu viku og við hefjum undirbúning verksins í framhaldi af því,“ segir Ingileifur Jónsson verktaki frá Svínavatni í Grímsnesi.
Fyrirtæki hans mun sjá um tvöföldun Suðurlandsvegar, á kaflanum milli Litlu Kaffistofunnar og Lögbergsbrekku alls um 6,5 kílómetra löngum kafla. Til stóð að hefja framkvæmdir í vor en verkið dróst vegna kærumála og fallið frá samningum við lægstbjóðendur.
Ingileifur segir að fyrst verði ráðist í fyllingar sem kalli fyrst og fremst á stórvirkar vinnuvélar fremur en mannskap. Um 20-30 manns starfa hjá fyrirtækinu sem er að ljúka endurbyggingu vegarins í Vatnsfirði. „Við hefðum staðið uppi verkefnalausir ef ekki hefði komið til þessa verkefnis nú,“ sagði Ingileifur í samtali við Sunnlenska fréttablaðið.