Ingimar Helgason, mag. theol., var kjörinn sóknarprestur í Kirkjubæjarklaustursprestakalli og verður vígður þann 17. nóvember næstkomandi.
Ingimar er fæddur á Akureyri árið 1984 en ólst upp á Vopnafirði. Hann lauk stúdentsprófi frá Verkmenntaskólanum á Akureyri og einkaflugmannsprófi frá Flugskóla Íslands árið 2007. Ingimar lauk mag. theol. prófi frá Háskóla Íslands árið 2018.
Ingimar hefur margvíslega starfsreynslu á kirkjulegum vettvangi. Á síðasta ári var hann kjörinn fulltrúi í jafnréttisnefnd þjóðkirkjunnar. Um tíma gegndi hann í afleysingum ritarastörfum í Grafarvogskirkju.
Kona Ingimars er Halldóra St. Kristjónsdóttir og er hún tæknimaður hjá DK-hugbúnaði. Þau eiga eitt barn.
Prestakallinu fylgir prestssetur á Kirkjubæjarklaustri og er presti skylt að hafa þar aðsetur og lögheimili. Ingimar verður skipaður í embættið frá 15. nóvember til fimm ára.