Ingvar ráðinn slökkviliðsstjóri á Blönduósi

Ingvar Sigurðsson, slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður á Selfossi, hefur verið ráðinn slökkviliðsstjóri Brunavarna Austur-Húnavatnssýslu og mun hefja störf þar eigi síðar en þann 1. maí næstkomandi.
 
Ingvar er löggiltur slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður og hefur starfað í tæp 10 ár sem hlutastarfandi slökkviliðsmaður hjá Brunavörnum Árnessýslu 2009-2019 en starfar núna sem einn af fjórum vakthafandi varðstjórum slökkviliðsins, og sinnir þar bakvöktum og þjálfun. Einnig hefur hann starfað við sjúkraflutninga hjá HSu á árinu 2015.
 
Hann hefur aflað sér leiðbeinendaréttinda tengt starfi sínu í slökkviliðinu, þar á meðal er hann leiðbeinandi í skyndihjálp, notkun hitamyndavéla og hurðarrofstækni. Hann hefur farið á fjölda námskeiða hjá Brunamálaskólanum, þar á meðal þjálfunarstjóra- og stjórnendanámskeiða ásamt því að sækja stjórnendanámskeið hjá Endurmenntun HÍ.
 
Ingvar er menntaður fangavörður og starfar nú sem varðstjóri í fangelsinu á Hólmsheiði en áður starfaði hann í rúm sjö ár á Litla-Hrauni. Einnig er hann menntaður lögreglumaður og starfaði sem slíkur í um tvö ár hjá lögreglunni á Suðurlandi.
 
Ingvar hefur einnig starfað við ýmis félagsstörf en hann er formaður félags slökkviliðsmanna í Árnessýslu, hefur verið í fagdeild slökkviliðsmanna hjá Landsambandi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) og situr í ritnefnd LSS.
 
Ingvar er kvæntur Birnu Kristinsdóttur og eiga þau þrjá syni.
 
Í fréttatilkynningu frá stjórn Brunavarna A-Hún. er ráðningu Ingvars fagnað og hlakkar stjórnina til þess að vinna með honum að frekari uppbyggingu í þessum mikilvæga málaflokki og að auknu samstarfi á svæðinu.
Fyrri greinSkíðagöngubraut lögð umhverfis Laugarvatn
Næsta greinFjórir bikarmeistaratitlar HSK keppenda